Uwell Crown 5 Kit
Uwell Crown 5 Kit
Uwell Crown 5 Kit
Uwell Crown 5 Kit

Uwell Crown 5 Kit

  • Fá eintök eftir - 2 stykki á lager
  • Vara í pöntun
  • Frí afhending innan Íslands á pöntunum yfir 10.000 kr.
Fullt verð14,800 kr
/
m. vsk. Sendingarkostnaður reiknaður í afgreiðsluferli

Litur

Crown 5 kittið er nýjasta viðbótin í Crown línuna frá Uwell. Moddið sjálft er ótrúlega fallega hannað og þæginlegt í hendi. Það tekur 2 x 18650 og fer frá 5 wöttum í 200 wött. Tvær stillingar eru í boði, það er venjulega watta stillingin og svokölluð hitastilling sem er aðalega fyrir fólk sem er að smíða sín eigin brennara.
Til að flakka á milli þessara tveggja stillinga þarf aðeins að ýta 3x á skot-takkan þá fer annaðhvort POW eða TCR merkið að blikka og geturu þá notað + eða - takkan til að flakka á milli stillinga.
Kittið kemur einnig með Crown 5 tankinum sem er einnig nýjasta útfærslan úr Crown tanka línunni. Crown tanka línan hefur verið lengi í gangi hjá Uwell og hefur hver Crown tankur verið mun betri en sá fyrri. Þetta skiptið hafa þeir endurbætt coilin sín enn betur og er toppurinn á tankinum núna undir svokölluð gormaþrýsting (spring loaded) sem á að sporna enn betur en áður við því að tankurinn leki.
Crown 5 kittið er ótrúlega vel og fallega hannað með litasamsetningu í huga á bæði tank og moddi. Við mælum sterklega með þessu nýja moddi frá Uwell fyrir þá sem eru að leita sér að nýrri Sub-Ohm græju.

ATH! Ef að húð á batterí er rifin á einhverjum stað eða batterí er dældað/skemmt, þá skal hætta notkun á batteríinu strax og koma með niður í Icevape (eða í næstu vape búð) til skoðunar! Oft er hægt að bjarga batteríum með því að skipta um húð á þeim.
Skemmd batterí geta valdið miklu tjóni og eru á ábyrgð eiganda þeirra.

Pakkinn inniheldur: 

  • 1x Uwell Crown 5 mod
  • 1x Uwell Crown 5 tank
  • 1x UN2 0.23Ohm coil ( í tankinum)
  • 1x UN2-2 0.3Ohm coil (Dual coil)
  • 1x Auka gler
  • 1x Aukahluta poki
  • 1x USB-C kapall
  • 1x Munnstykkjahlíf
  • 1x Notendahandbók

Ýtarlegri upplýsingar um Crown 5 moddið: 

  • Framleiðandi: Uwell
  • Gerð: Crown 5
  • Týpa: Box mod
  • Stærð: 8.62 x 5.3 x 2.62 cm
  • Volta stilling: 0.7 - 8.0V
  • Watta stilling: 6 - 200W 
  • Hita stilling: 100° - 315°C
  • Viðnám: 0.1 - 3.0 Ohm
  • Skjár: TFT
  • Þræðing: 510
  • Batterí: Tekur 2x 18650 FYLGIR EKKI
    Hægt er að kaupa 18650 batterí hér: Batterí og hleðsludokkur
  • Hleðsla: Batterí tekin úr og hlaðin með hleðsludokku, hægt er að hlaða með snúru í neyð en við mælum ekki með því!
    Hægt er að fá hleðsludokku hér: Batterí og hleðsludokkur
  • Varnir: Ofnotkunarvörn, Lágviðnámsvörn, Ofhitnunarvörn og Skammhlaupsvörn.

    Ýtarlegri upplýsingar um Crown 5 tankinn: 

    • Framleiðandi: Uwell
    • Gerð: Crown 5
    • Týpa: Sub Ohm DTL (Directly To Lun) 
    • Stærð: 5ml
    • Þvermál: 25mm
    • Þræðing: 510
    • Áfylling: Toppstykkinu þrýst niður og skrúfað af.
    • Útskiptanlegt gler: Já
    • Þú færð auka gler hér: Crown 5 gler
    • Útskiptanlegt munnstykki: Já
    • Stærð á munnstykkja tengi: 510
    • Loftflæði: Stillanlegt í botni
    • Útskiptin Coila: Botn skrúfaður af, gamla coil tosað úr tanki, nýtt coil sett í, botn skrúfaður aftur á og fylltur.
    • Gerð coila í boði: 0.23Ohm mesh coil.
    • Þú færð auka coil hér: Linkur á coil

    Í boði er heimkeyrsla á Akureyri, Sækja í verslun eða fá sent með Íslandspósti skv. gjaldskrá, sent á pósthús, í póstbox eða í heimkeyrslu.

    Sjá má allt um afhendingarmáta og verð hér: Afhendingarmátar

    Vefslóð opnast í nýjum glugga


    Nýlega skoðaðar vörur