Allt að 15% magnafsláttur af völdum vörumVerslaðu meira fyrir minna
Innokin Zenith II Tankur
Fullt verð
4,800 kr
Sparaðu -4,800 kr
Innokin Zenith II tankurinn er frábær tankur frá Innokin sem er hægt að nota bæði sem MTL eða DTL tank. Þessi sveigjanleiki í loftflæði gerir tankinn afar fjölhæfan í notkun. Langi þig að nota hann sem aðeins DTL tank er hægt að opna loftflæðið alveg upp á gátt og stiðjast við lægri viðnáms coilin í Z coila línunni frá Innokin. En langi þig hinsvegar aðeins að nota hann sem MTL tank er hægt að þrengja loftflæðið niður í aðeins eitt lítið gat og fá þá úr honum þröngt og stíft loftflæði. Gott er þá að nota coil með hærra viðnámi til þess að gufan verði ekki of heit. Við mælum með Zenith II tankinum fyrir alla þá sem langar að prófa sig áfram í vape-inu og eru ekki vissir hvort þeir vilja endilega DTL eða MTL tanka til þess að geta prófað bæði í sama tanki.
ATH! Hér að ofan er talað mikið um bæði MTL og DTL. Til þess að skilja það betur, stendur DTL fyrir direct to lung (beint ofan í lungu) og stendur MTL þá fyrir mouth to lung (first upp í munn, svo ofan í lungu).
Pakkinn inniheldur:
1x Zenith II tankur
1x 0.8 Ohm coil (í tanki)
1x 0.3 Ohm coil
1x Auka munnstykki
1x Auka gler
1x Aukahlutapoki
1x Notendahandbók
Ýtarlegri upplýsingar um Innokin Zenith II:
Framleiðandi: Innokin
Gerð: Zenith II
Týpa: Sub Ohm DTL (Directly To Lung) / Standard MTL (Mouth To Lung)
Stærð: 5.5ml
Þvermál: 25.5mm
Þræðing: 510
Áfylling: Toppstykki er snúið til hægri þangað til opið sést í gati á toppstykki, tankur fylltur og skrúfað aftur fyrir til vinstri til að loka.
Útskiptanlegt gler: Já
Útskiptanlegt munnstykki: Já
Stærð á munnstykkja tengi: 510
Loftflæði: Stillanlegt í botni
Útskiptin Coila: Botn skrúfaður af, coil tosað úr tanki, nýtt coil sett í stað þess gamla, botn skrúfaður aftur á og tankur fylltur.