Ný aðgangssíða og innskráningarferli

Við höfum nú gert mikilvægar uppfærslur á Icevape.is til að bæta aðgang viðskiptavina, innskráningu og notenda upplifun.

Hvað er nýtt:

  • Nýtt innskráningarkerfi
  • Ný aðgangssíða viðskiptavina
  • Möguleiki á að panta sömu vörur aftur úr fyrri pöntun
  • Betra yfirlit yfir fyrri pantanir

ATH: Viðskiptavinir sem þegar hafa virkan aðgang þurfa ekki að gera neitt - Aðgangurinn þinn flyst sjálfkrafa yfir í nýja kerfið.

Nýtt innskráningarkerfi

Þú þarft ekki lengur lykilorð. Þú einfaldlega slærð inn netfangið þitt og við sendum þér 6 stafa PIN-númer í tölvupósti. 
Notaðu það til að skrá þig inn. Það er sjálfvirkt og fljótlegt.

Viðskiptavinir með "Shop" aðgang geta líka notað hann til að skrá sig beint inn.

Viðskiptavinir sem eiga aðgang fyrir, geta notað netfangið sem tengt er við þann aðgang til að skrá sig inn með nýju aðferðinni.


 

Nýir viðskiptavinir - Skráningarform

Nýir viðskiptavinir verða beðnir um að fylla út stutt skráningarform fyrir fyrstu pöntun. 
Þetta skref er einungis þörf á að gera einu sinni og tekur aðeins nokkrar sekúndur.

ATH: Ef þú sérð þessa villumeldingu þegar þú reynir að ganga frá pöntun:

Smelltu þá einfaldlega á ICEVAPE logo-ið efst á síðunni til að færast yfir á skráningarformið. Þegar þú hefur fyllt það út getur þú strax gengið frá pöntuninni þinni.

Þessu skrefi verður skipt út fyrir rafræn skilríki í náinni framtíð.

Panta aftur!

Ef þú smellir á litla kallinn efst í hægra horninu á síðunni kemst þú inn á þínar síður og sérð þar yfirlit yfir eldri pantanir.

Þar getur þú séð yfirlit yfir allar fyrri pantanir og við hverja þeirra er hnappur til að panta aftur það sama og síðast.
Þegar þú smellir á hann fara allar vörurnar úr þeirri pöntun í vörukörfuna þína - Þó gæti auðvitað alltaf verið að einhverjar þeirra séu ekki til á lager.
Einfalt og þæginlegt

Vandræði?

Í sjaldgæfum tilvikum gætu viðskiptavinir sem áður höfðu aðgang lent í því að síðan hleðst ekki rétt inn þegar þeir skrá sig inn í fyrsta skipti með nýja kerfinu.
Lausnin er einföld - hreinsaðu cache/vafrakökur í vafranum þínum og reyndu aftur.
Annar valkostur er að nota annan vafra.

Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar - við erum alltaf til í að hjálpa.

Hjalti Asgeirsson — Icevape

P.S. Þú ert alltaf fremst í röðinni á Icevape.is.