Skilmálar

Skilmálar Icevape er sem hér segir

Við hjá Icevape ásetjum okkur það markmið að veita viðskiptavinum okkar persónulega og góða þjónustu.
Hér koma upplýsingar um þá skilmála sem vefverslunin Icevape.is gefur sér.
Hafir þú einhverjar spurningar þá svörum við fyrirspurnum á icevape@icevape.is

Aldurstakmark
Í verslun Icevape og í vefverslun icevape.is er 18 ára aldurstakmark. Við áskiljum okkur rétt til þess að biðja fólk um sönnun um aldur með framvísun löggildra skilríkja með mynd. 
Komist upp um að viðskiptavinur sé að ljúga til um aldur eftir að sala hefur verið framkvæmd í verslun eða á vefnum verður vara ekki afhent og sala endurgreidd að fullu eftir að rætt hefur verið við foreldra eða forráðamann.
Allar tilraunir einstaklinga undir 18 ára aldri til kaupa á vefverslun hvort sem þær pantanir séu greiddar eða ekki, verða tilkynntar til foreldra eða forráðamanna.
Endurtekin brot gætu leitt til tilkynningar til yfirvalda svosem barnaverndar og/eða lögreglu.
Foreldrar munu ráða því hvort endurgreiðsla muni fara inná þau eða þann sem pantaði enda eru aðilar undir 18 ára ekki fjárráða.
Frekar um aldurstakmark má finna hér: Aldurstakmark

Vafrakökur og persónuvernd
icevape.is notast við vafrakökur (Cookies) til þess að bæta virkni síðunnar gagnvart þér þar sem slíkt á við. Með því að nota þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum.

Allar upplýsingar sem mögulega eru geymdar um þig eða þína notkun eru með öllu trúnaðarmál og munu aldrei vera afhentar þriðja aðila.

Einu skiptin þar sem að þriðji aðili fær einhverjar upplýsingar úr okkar kerfi um viðskiptavin er þegar að verið er að greiða fyrir vöru, Þá sendir kerfið upplýsingar um þig í örugga greiðslugátt þess þjónustuaðila sem þú velur að greiða með svo hægt sé að tengja pöntun og greiðslu saman.
Allir þjónustuaðilar okkar vinna eftir ströngum öryggis og trúnaðar reglum.

Skráir þú þig á póstlista þá munu þínar upplýsingar vistast í kerfi þess þjónustuaðila sem við notumst við hverju sinni (Mailchimp) í þar til gerðum lista.
Mailchimp vinnur eftir ströngustu reglum persónuverndarlaga og munu upplýsingar þínar aldrei vera vísvitandi afhentar þriðja aðila af okkur né Mailchimp.

Við notkun á netspjalli eru viðskitpavinir beðnir um að senda okkur nafn, netfang og símanúmer. Þetta er gert til þess að hafa betri yfirsýn yfir viðskiptavini og auðvelda okkur áframhaldandi samskipti við viðskiptavini sé þörf á því.

Persónuverndar stefnu okkar má finna hér: Persónuvernd

Heimsendingar
Icevape sendir pantanir með Íslandspósti innan 24 klst á virkum dögum frá því að pöntun er greidd. Við munum gera okkar besta að senda út pantanir eins fljótt og hægt er innan þess tíma. 
Sé gengið frá greiðslu um helgi, á frídögum eða seinnipart föstudags fer pöntun í póst næsta virka dag.
Sé pantað eftir klukkan 15:00 á virkum dögum er ekki víst að sending komist á pósthús samdægurs þó við auðvitað gerum okkar besta í hvert skipti.

Sendingarkostnaður reiknast út frá heildarverðmæti vörukörfu og er hann ódýrari eftir því sem meira er í körfunni. Hægt er að sjá nánar um sendingarkostnað hverju sinni hér: Sendingarmátar

Greiðslur í vefverslun
Allar greiðslur fara fram í gegnum öruggar greiðslugáttir og geymir Icevape ekki neinar kortaupplýsingar eða lykilorð.
Þú getur valið um að greiða með eftirfarandi leiðum
1. Kredit-/Debetkort - Greitt í gegnum örugga gátt Kortaþjónustunar með annaðhvort kreditkorti eða debetkorti
2. Netgíró - Við sendum vöruna strax, og þú borgar á næstu 14 dögum.
Hér þarf viðskiptavinur að hafa aðgang hjá Netgíró, Með þessari leið færð þú sendann greiðsluseðil í heimabankann þinn sem greiða þarf innan 14 daga. Viðskiptavinur getur dreift greiðslum eftirá í gegnum þjónustuvef Netgíró. 
3. PEI (ÓVIRKT UM ÓÁKVEÐINN TÍMA*) - Við sendum vöruna strax og þú borgar á næstu 14 dögum.
Hér þarf viðskiptavinur að hafa aðgang hjá PEI. Með þessari leið færð þú sendann greiðsluseðil í heimabankann þinn sem greiða þarf innan 14 daga.
*Pei er ekki í boði í þessu vefverslunarkerfi strax en það er í vinnslu og munum við virkja þessa greiðsluleið aftur um leið og það er hægt

Greiðslur í verslun

Hægt er að greiða í verslun okkar með debetkortum, kreditkortum, pening, Netgíró og Pei. ATH að við tökum ekki við AMEX.

Öll verð í verslun og vefverslun Icevape eru birt með fyrirvara um villur.
Ef vara er augljóslega á röngu verði vegna kerfisvillu, mannlegra mistaka  eða annara ástæðna áskiljum við okkur rétt til þess að hætta við pöntun.

Hætta við pöntun - Réttur til að falla frá samning: 

Tilboðsvörum fæst hvorki skilað né skipt!

Skilafrestur á vörum er 14 dagar frá kaupdegi gegn framvísun á fullnægjandi sönnun fyrir kaupum.
Vörur sem seldar eru innsiglaðar er eingöngu hægt að skila sé innsigli órofið. 
Ekki er hægt að taka við vörum þar sem innsigli hefur verið rofið sökum eiginleika á umræddum vörum. Þetta á við um rafrettur, tanka, hylki, hitara(coil), hleðslutæki og vökva.
Hér er um að ræða neysluvörur og ómögulegt að segja til um hvort að vara hafi verið notuð eða ekki og hvort hún uppfylli nauðsynlegt öryggi og hreinlæti ef að innsigli hefur verið rofið, en slík skilyrði eru sett í samræmi við undanþágur í e. lið 18 gr. laga nr. 16/2016 með tilliti til lýðheilsusjónarmiða og hreinlætisástæðna.

Óski viðskiptavinur eftir því að falla frá samning greiðir viðskiptavinur fyrir allan sendingarkostnað á endursendingu vöru til okkar. 
Viðskiptavinur fær þá endurgreitt fyrir þá vöru sem skilað er á því verði sem hann verslaði hana á.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur.
Viðskiptavinur hefur val um með hvaða máta hann skilar vöru til okkar. hvort sem það er í persónu, fær annan einstakling til þess að koma vörunni til okkar eða notast við sendingarfyrirtæki að eigin vali.
Vörur sem sendar eru með Íslandspósti skulu ávalt vera sendar beint í verslun (heimkeyrsla) en ekki sendar á pósthús.

Endurgreiðsla er ekki framkvæmd fyrr en vara hefur skilað sér til okkar og staðfest hefur verið að hún uppfylli öll skilyrði varðandi vöruskil.

Óski viðskiptavinur eftir inneignarnótu í stað endurgreiðslu, eða skiptum á annari vöru, verður slíkt auðvitað afgreitt eftir bestu getu hverju sinni.

Villur, gallar og önnur ávöxtun vara

1. Tönkum færst einungis skilað / skipt séu þeir ónotaðir í upprunalegum pakkningum gegn framvísun kassakvittunar.

Þar sem eðli tanka er mjög mismunandi og ekki er hægt að vita hvaða rafhlöðu, kraft eða vökva viðskiptavinir eru að nota hverju sinni er ekki hægt að bera ábyrgð á því hversu lengi einn tankur mun endast hverju og einum. Einnig er ekki hægt að ábyrgjast það að tankur henti viðkomandi einstakling þar sem vape stíll einstaklinga er mismunandi og því getur tankur t.d. lekið hjá einum notanda en ekki öðrum, coil geta enst stutt hjá einum en lengi hjá öðrum. 
Engin ábyrgð er á tönkum en við gerum allt sem við getum til þess að hjálpa þér að finna út hvað veldur vandamálum sem kunnu að koma með tank sem þú kaupir hjá okkur.

2. Komi í ljós galli í vöru sem rekja má til framleiðslugalla er um að ræða lögbundna tveggja ára ábyrgð á raftækjum, en sökum eðlis rafrettna þá eru þær framleiddar með lágmarks endingartíma upp á þrjá mánuði til viðmiðunar. Ábyrgð nær ekki til bilana sem framleiðanda eða seljanda verður ekki um kennt, svo sem bilana sem stafa af flutningi, rangri meðferð eða misnotkun, slæmu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum, truflunum á rafkerfum, röngum hleðsluaðferðum, höggum eða rakaskemmdum.

Réttur kaupanda til bóta er skv. lögum um neytendakaup nr. 48 / 2003.  
Ath. að ef um fyrirtæki er að ræða eiga við lög um lausafjárkaup nr. 50 / 2000

Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis, svo sem að galli sé tilkynntur strax og hans kann að verða vart og að ekki hafi verið átt við tækið af aðilum óviðkomandi seljanda, nema í samráði við hann.

Ef söluhlutur er gallaður ber neytanda að tilkynna seljanda um að hann muni bera gallann fyrir sig án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð galla var eða mátti verða hans var. Frestur neytenda til að leggja fram kvörtun er aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að hann varð galla var.

Coil (brennarar/hitarar) falla ekki undir ábyrgð enda eru þau þess eðlis að þau endast að hámarki 2 vikur frá upphafi notkunar, en geta enst allt niður í nokkrar klukkustundir þó sjaldgæft sé. Endingin er mjög mismunandi og fer hún eftir notkun, hve sætir/súrir vökvar eru, notkunartækni neytenda, undirbúning á coili (að það blotni nóg fyrir fyrstu notkun) og þessháttar. Af þeim ástæðum er augljóslega ekki hægt að ábyrgjast þessar vörur sökum eðlis þeirra að ekki er hægt að sanna að hún hafi verið gölluð við afhendingu.

Ef viðskiptavinur telur vöru gallaða þurfum við að fá hana í hendurnar til skoðunar, hvort sem það er afhent í verslun eða sent til okkar, Reynist vara ekki gölluð við skoðun hjá okkur þá er vara endursend á kostnað viðskiptavinar.
Ekki skal senda vöru til okkar án þess að hafa samband við okkur fyrst!

 

Ódýrari batterí geta verið keyrð út eftir 90 daga í stöðugri notkun og hleðslu. Hleðslubatterí hafa ekki endalausta getu og rýrna með tímanum. Teljir þú vöruna gallaða frekar en útkeyrða þá getur þú sent hana til okkar og við förum yfir hana og metum hvort um sé að ræða galla eða notkun.

Mjög mikilvægt er að geyma kassakvittun úr verslun eða kvittun frá vefverslun og alla kassa utan af vörum svo hægt sé að vinna með ábyrgðarmál. Sé kassi og fullnægjandi sönnun fyrir kaupunum ekki til staðar þá er lítið hægt að gera í ábyrgðarmálum

Til að skila til okkar vöru þarf að senda hana til okkar vel innpakkaðri í A pósti á þinn kostnað. Einnig þarf að útvega upprunalega kvittun, kennitölu, fullt nafn og símanúmer.  Mjög mikilvægt er að hafa kassan utan af vörunni með, bæði kassa og pakkningu utan um kassann ef á við, t.d. ef vara er með pappa húð utanum kassann með mynd og upplýsingum um græju.
Upplýsingar skulu fylgja með sem útskýra hver ástæða endursendingar er.
Við berum ekki ábyrgð á glötuðum sendingum sem verið er að senda til okkar.
VIðskiptavinur greiðir kostnað á sendingum á vörum til okkar en reynist gallinn flokkast undir ábyrgðargalla verður sendingarkostnaðurinn endurgreiddur.
Reynist vara ekki gölluð sendum við vöruna til baka á kostnað viðskiptavinar.

Viðskiptavinnir sem reyna að skila klónuðum vörum, þ.e vörum sem eru eftirlíkingar eða vörum sem ekki eru keyptar hjá okkur og ekki gerðar af framleiðendum sem við styðjum og seljum frá, munu fá vöruna endursenda til sín á eigin kostnað, og þeir viðskiptavinir munu ekki lengur fá að versla við okkur á vefsíðu okkar né í verslun og málið meðhöndlað sem vörusvik samkvæmt lögum.

Ágreiningsmál

Komi upp ágreiningur milli seljanda og kaupanda getur kaupandi óskað eftir því að málið verði tekið til skoðunar hjá þriðja aðila, svonefndum útskurðaraðila.
Kaupandi þarf að óska eftir því beint til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa sem tekur málið fyrir.

Útskurðaraðili
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
www.kvth.is
Borgartún 21
105 Reykjavík

Annað

Við fögnu ábendingum varðandi skilmála þessa og viljum ávalt veita viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustuna.
Ef það er eitthvað sem þér finnst vera ósanngjarnt eða óskýrt í skilmálum þessum þá skalt þú endilega hafa samband við okkur.

Skilmálar þessir geta tekið breytingum án fyrirvara.