Um okkur

Icevape er sérvöruverslun með nikótínvörur.
Við erum eingöngu á netinu og er vöruhúsið okkar staðsett á Akureyri

Icevape er rekið af:
Icevape ehf.
KT: 5910160160
VSK: 126211

Sagan okkar

Icevape er sérvöruverslun sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á vape vörum og vökvum.

Við seljum hágæða veipur (rafrettur) og vökva í þær. Við kappkostum við að bjóða uppá bestu mögulegu þjónustuna og berjumst við að hafa verðin eins góð og við mögulega getum.

Verslunin er rekin af Icevape ehf. sem er í eigu Hjalta Ásgeirssonar

Reksturinn hófst þann 10. Október 2015 og var til að byrja með mjög lítill og féllst aðalega í því að flytja inn og selja eina gerð vape penna og nokkra vökva fyrir vini, fjölskyldu og vinnufélaga Hjalta. 
Innan mánaðar fór vefverslun í loftið sem bar nafnið Vökvi.net og bættist hægt og rólega í úrvalið sem á leið.

12. Júní 2016 var fyrsta almenna verslunin opnuð í Hafnarstræti 97 á Akureyri og var þá nafninu breytt úr Vökvi.net í Vökvi Vape Shop

27. Febrúar 2017 fluttum við verslunina í betra og flottara húsnæði að Strandgötu 9 á Akureyri

1. Maí 2017 var síðan hafist handa við að breyta nafni á versluninni úr Vökvi Vape Shop í Icevape og heitir verslunin það í dag, Ný og mikið öflugari vefverslun var á sama tíma tekin í notkun undir léninu icevape.is

Í febrúar 2018 var nafni fyrirtækisins VVS ehf. breytt í Icevape ehf. en engar breytingar áttu sér stað á kennitölu eða VSK númeri.

Í janúar 2019 var vefverslunin okkar uppfærð í enþá fullkomnara kerfi til þess að auðvelda okkar viðskiptavinum að nálgast vörurnar okkar enn frekar ásamt því að nýtt og öflugara afgreiðslu og birgðarkerfi var tekið í notkun.

20. febrúar 2026 var síðasti dagurinn sem verslunin í Strandgötu 9 var opin, og hefur Icevape síðan þá verið 100% netverslun með það markmið að bjóða hraða afgreiðslu, frábær kjör og topp þjónustu.