Eneloop - AAA hleðslurafhlöður
Eneloop - AAA hleðslurafhlöður

Eneloop - AAA hleðslurafhlöður

  • Til á lager
  • Vara í pöntun
  • Frí afhending innan Íslands á pöntunum yfir 10.000 kr.
Fullt verð2,590 kr
/
m. vsk. Sendingarkostnaður reiknaður í afgreiðsluferli

Eneloop eru frábærar hleðslurafhlöður sem framleiddar eru af Panasonic. Eneloop rafhlöðurnar hafa fengið frábæra dóma um allan heim og eru mjög endingagóðar.

Eneloop rafhlöðurnar eru einar af bestu hleðslurafhlöðum sem fást á markaðnum í dag. Einnig eru þær mjög vistvænar þar sem þær koma forhlaðnar með sólarorku og eru endurvinnanlegar.

Panasonic gefur upp að hægt er að hlaða eneloop rafhlöðuna allt að 2100 sinnum! Einnig halda þær hleðslu afar vel, eneloop rafhlaðan heldur 90% af hleðslunni sinni í 1 ár í geymslu og allt að 70% eftir 10 ár. Þannig að þótt að rafhlaðan fái að standa mjög lengi heldur hún hleðslunni sinni vel miðað við aðrar hleðslurafhlöður. Eneloop rafhlöður eru því afar góður kostur í raftæki sem nota litla orku í langan tíma eins og t.d. sjónvarps fjarstýringar.

Einn besti kosturinn við eneloop rafhlöðurnar eru há spennustaða þeirra. Það slökknar á mörgum tækjum þegar spennan er orðin lægri en 1.1 Volt. En eneloop heldur sínu spennustigi í langan tíma og fer aðeins undir þessi mörk rétt áður en hleðslan tæmist.

Að skipta yfir í hleðslurafhlöður sem þessa er ekki aðeins spurning um peningasparnað eða hentugleika. Heldur er það mun umhverfisvænna en að kaupa einnota rafhlöður.

Hægt er að hlaða allar rafhlöðurnar okkar í öllum hleðsludokkunum sem við bjóðum upp á. Þú finnur hleðsludokkur hér.

ATH: Við mælum aldrei með að hlaða þessa týpu af rafhlöðum á meira en 0.5 Amper straum.

Nánari upplýsingar um Eneloop – AAA hleðslurafhlöður.

  • Framleiðandi: Panasonic
  • Týpa: Eneloop
  • Gerð: AAA
  • Magn í pakkningu: 4stk
  • Lágmarks mAh: 750mAh
  • Volt: 1.2V
  • Afhleðsla: 70% eftir 5 ár
  • Hleðslufjöldi: 2100 hleðslur
  • Koma forhlaðin: 
  • Hillulíf: 10 Ár

Í boði er heimkeyrsla á Akureyri, Sækja í verslun eða fá sent með Íslandspósti skv. gjaldskrá, sent á pósthús, í póstbox eða í heimkeyrslu.

Sjá má allt um afhendingarmáta og verð hér: Afhendingarmátar

Vefslóð opnast í nýjum glugga

Þér gæti einnig líka við


Nýlega skoðaðar vörur