Eneloop Pro - AA hleðslurafhlöður
Eneloop Pro - AA hleðslurafhlöður

Eneloop Pro - AA hleðslurafhlöður

  • Til á lager
  • Vara í pöntun
  • Frí afhending innan Íslands á pöntunum yfir 10.000 kr.
Fullt verð3,450 kr
/
m. vsk. Sendingarkostnaður reiknaður í afgreiðsluferli

Eneloop pro eru frábærar hleðslurafhlöður sem framleiddar eru af Panasonic. Eneloop pro rafhlöðurnar hafa fengið frábæra dóma um allan heim og eru mjög endingagóðar.

Eneloop pro rafhlöðurnar eru einar af bestu hleðslurafhlöðum sem fást á markaðnum í dag. Einnig eru þær mjög vistvænar þar sem þær koma forhlaðnar með sólarorku og eru endurvinnanlegar.

Panasonic gefur upp að hægt er að hlaða eneloop pro rafhlöðuna allt að 500 sinnum. Einnig halda þær hleðslu afar vel, eneloop pro rafhlaðan heldur 85% af hleðslunni sinni í allt að 1 ár í geymslu. Þannig að þótt að rafhlaðan fái að standa mjög lengi heldur hún hleðslunni sinni vel miðað við aðrar hleðslurafhlöður. Eneloop pro rafhlaðan vinnur afar vel við allar aðstæður og hefur sýnnt að hún vinnur einstaklega vel í kulda. Á notkunarsviðinu 0°C til -20°C er vinnsla eneloop pro rafhlöðunar óaðfinnanleg.

Eneloop pro rafhlaðan er mun afkastameiri en venjuleg rafhlaða. Að jafnaði er hægt að taka mun fleyri myndir með eneloop pro rafhlöðu á rafræna myndavél en ef notaðar væru venjulegar rafhlöður. Eneloop pro rafhlöðurnar hennta afar vel í tæki sem draga mikinn straum hverju sinni eða eru í stanslausri notkun t.d. myndavéla flass, þráðlaus lyklaborð og mýs, stýripinna eða fjarstýrð leikföng.

Einn besti kosturinn við eneloop rafhlöðurnar eru há spennustaða þeirra. Það slökknar á mörgum tækjum þegar spennan er orðin lægri en 1.1 Volt. En eneloop heldur sínu spennustigi í langan tíma og fer aðeins undir þessi mörk rétt áður en hleðslan tæmist.

Að skipta yfir í hleðslurafhlöður sem þessa er ekki aðeins spurning um peningasparnað eða hentugleika. Heldur er það mun umhverfisvænna en að kaupa einnota rafhlöður.

Hægt er að hlaða allar rafhlöðurnar okkar í öllum hleðsludokkunum sem við bjóðum upp á. 

ATH: Við mælum aldrei með að hlaða þessa týpu af rafhlöðum á meira en 0.5 Amper straum.

Nánari upplýsingar um Eneloop pro – AA hleðslurafhlöður.

  • Framleiðandi: Panasonic
  • Týpa: Eneloop Pro
  • Gerð: AA
  • Magn í pakkningu: 4stk
  • Lágmarks mAh: 2500
  • Volt: 1.2V
  • Afhleðsla: 85% eftir 1 ár
  • Hleðslufjöldi: 500 hleðslur
  • Koma forhlaðin: 
  • Hillulíf: 10 Ár

Í boði er heimkeyrsla á Akureyri, Sækja í verslun eða fá sent með Íslandspósti skv. gjaldskrá, sent á pósthús, í póstbox eða í heimkeyrslu.

Sjá má allt um afhendingarmáta og verð hér: Afhendingarmátar

Vefslóð opnast í nýjum glugga

Þér gæti einnig líka við


Nýlega skoðaðar vörur