Xtar PDC-3 Kapall
✅ Þessi vara er seld á lægra verði þar sem hún var sýningareintak í versluninni okkar
✅ 100% ný og ónotuð vara, en kassinn hefur verið opnaður
✅ Allir aukahlutir fylgja með
✅ Sömu ábyrgðarskilmálar eiga við um B-vöru sem og aðrar vörur í þessum flokki
✅ Takmarkað magn - aðeins fá eintök í boði!
✅ Litur verður sendur af handahófi út frá lagerstöðu hverju sinni
- Fá eintök eftir - 1 stykki á lager
- Vara í pöntun
- FRÍ SENDING í póstbox / pósthús á pöntunum yfir 14.990 kr.
PDC-3 kapallinn frá Xtar er alger snilld, í stað þess að þurfa eiga 3 mismunandi snúrur fyrir 3 mismunandi tæki auðveldar PDC-3 kapallinn þér vinnuna.
Í grunninn er kapallinn usb-c snúra í báða enda, en í pakkanum fylgja með 3 önnur mismunandi millistykki til að breyta þá snúrunni annaðhvort í USB-Micro, Lightning tengi fyrir apple vörur eða venjulegt USB tengi.
Millistykkin er hægt að taka af svo ekki þarf að hafa þau öll hangandi utan á vírnum hverju sinni.
Kapalinn er einnig mjög endingargóður þar sem hann hefur verið vafinn með afar þunnum vír sem búið er að flétta saman til að sporna við sliti.
Þar sem kapallinn er með USB-C tengi á báðum endum er mjög einfalt að færa gögn á milli síma hvort sem það er á milli iphone eða android síma.
Þykkt kapalsins er 16 AWG svo hann ætti að geta borið allt að 3 Amper straum sem er mjög gott fyrir hraðhleðslu.
Nánari upplýsingar um PDC-3 kapalinn:
- Framleiðandi: Xtar
- Gerð: PDC-3
- Týpa: USB kapall
- Max Amper straumur kapals: 3 Amper
- Lengd Kapals: 1,2m
- Port í boði: USB, Micro-USB, USB-C, Lightning tengi.
- Þyngd: 44gr
Innihald:
- 1x Xtar PDC-3 kapall
- 1x USB-A millistykki (standard usb)
- 1x Micro USB millistykki
- 1x Lightning millistykki
- 1x Notendahandbók
Afgreiðsla pantana:
- Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru afgreiddar og sendar af stað samdægurs.
- Pantanir sem berast eftir kl. 12:00, eða um helgar og helgidaga, eru afgreiddar næsta virka dag.
- 📍 Akureyringar athugið: Pantanir á Akureyri sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum skila sér að jafnaði í póstbox samdægurs.
Við sendum um allt land með Íslandspósti.
👉 Sjá nánar um afhendingarmáta og verð hér
(opnast í nýjum glugga)